Sýnum þakklæti þegar einhver vinnur góðverk fyrir okkur.
Góðverk þurfa ekki að vera stór til að skipta máli því það er hugurinn og frumkvæðið sem máli skipta.
Umbunin getur falist í þakkarorðum eða einlægu brosi þess sem þiggur, en ríkulegasta umbunin er þó oftast eigin vellíðan yfir að hafa unnið góðverk.
Góðverk eru þeirrar náttúru að þau fjölga sér á ógnarhraða, gerendum og þiggjendum til gleði og ánægju.