Nýjustu góðverkin

28.02.2011
Birta Líf, María Rós og Hildur Helma, 245 Sandgerði
Við vinkonurnar notuðum vetrarfríið okkar í skólanum í að perla og lita. Svo gengum við í hús í hverfinu okkar og gáfum fólki myndir og perlur sem við vorum búnar að strauja:)
MEIRA
26.02.2011
44 ára kona, 105 Reykjavík
Mættum í vinnu á laugardagsmorgni og þá hafði ein ljósmóðirin komið við í bakaríi fyrir okkur öll á deildinni, 10 mín. síðar mætir önnur ljósmóðir með aðrar eins veitingar. Það var enginn svangur á fæðingadeildinni þennan fallega laugardagsmorgun. ...
MEIRA
Bandalag íslenskra skáta
Samstarfsaðilar:
Stöð 2BylgjanVísirSkýrr

Kynlegir Kvistir á Húsavík

13.02.2010

Ó já það er ævinlega ánægjulegt þegar maður getur gert eitthvað sem flokka má sem góðverk.

Hér á Húsavík höfum við til dæmis litlu búðina okkar Kynlega Kvisti. Þangað getur fólk komið með allskonar hluti sem það er hætt að nota einhverra hluta vegna, þessa hluti seljum við svo einhverjum öðrum sem not hafa fyrir þá. Allur ágóði af þessari sölu fer í að hjálpa þeim sem af einhverjum orsökum eru hjálpar þurfi.

Fyrir síðustu jól gátum við glatt þó nokkuð marga einstaklinga og fjölskyldur sem vegna veikinda eða atvinnuleysis höfðu ekki úr of miklu að spila.

Þið sem þetta lesið, munið eftir Kynlegum Kvistum á Húsavík.
Upplýsingar má til dæmis fá hjá Stefáni Bjarna í sima 847 1947