Ég hef góða reynslu af því hvað svona góðverka hugsun gefur mikið - ekki bara þeim sem njóta góðverkanna heldur líka þeim sem gera þau.
Mig langar að segja þér aðeins frá því hvað þetta getur verið einfalt og þarf ekki að kosta krónu.
Fyrir jólin 2007 ákváðum við, ég og stjúpdóttir mín sem þá var 9 ára að leitast við að koma auga á tækifæri til að gera góðverk þegar við förum út að versla í matinn. Við einsettum okkur þá að gera eitt "góðverk" í hverri verslunarferð - reyndar höfum við ekki alveg náð því markmiði en svo gott sem.
Dæmi um það sem við gerum er eftirfarandi:
Ef við sjáum að einhver er að tæma innkaupakörfu við bílinn sinn og við á leið inn í búðina þá bjóðumst við til að taka körfuna með okkur - þetta vekur alltaf gleði tala nú ekki um ef viðkomandi er með lítil börn líka.
Ef einhver er næst fyrir aftan okkur í röðinni og er að versla lítið en við með fulla innkaupakörfu þá bjóðum við viðkomandi untantekningalaust að fara fram fyrir okkur - það þarf ekki að spyrja að því að fólk er bæði hissa og ánægt.
Annað sem við gerum stundum - metum þó einstaklinga og aðstæður :) er ef einhver er einn og er að versla mikið og við næstar í röðinni þá bjóðumst við til að aðstoða við að setja í pokana.
Þetta "verkefni" okkar er búið að vera við líði í rúmt ár núna og hvert "góðverk" gefur okkur alltaf jafn mikla gleði og ekki þarf að nefna það að hinar frekar tilbreytingarlausu verslunarferðir í stórmarkaðinn eru orðnar að hinum skemmtilegustu stundum hjá okkur.
Með bestu kveðju
Ragnheiður Björk