Nýjustu góðverkin

28.02.2011
Birta Líf, María Rós og Hildur Helma, 245 Sandgerði
Við vinkonurnar notuðum vetrarfríið okkar í skólanum í að perla og lita. Svo gengum við í hús í hverfinu okkar og gáfum fólki myndir og perlur sem við vorum búnar að strauja:)
MEIRA
26.02.2011
44 ára kona, 105 Reykjavík
Mættum í vinnu á laugardagsmorgni og þá hafði ein ljósmóðirin komið við í bakaríi fyrir okkur öll á deildinni, 10 mín. síðar mætir önnur ljósmóðir með aðrar eins veitingar. Það var enginn svangur á fæðingadeildinni þennan fallega laugardagsmorgun. ...
MEIRA
Bandalag íslenskra skáta
Samstarfsaðilar:
Stöð 2BylgjanVísirSkýrr

8000 þátttakendur á Facebook

22.02.2011
Góðverkadagarnir byrja vel, þegar hafa um 8000 þátttakendur skráð sig í "Góðverk gleðja" hóp Góðverkadaganna á Facebook og gera má ráð fyrir að hópurinn stækki dag frá degi út vikuna. Við hvetjum þá þátttakendur sem ekki eru búnir að skrá sig í Facebook hópinn að skrá sig og hvetja vini sína til að gera slíkt hið sama. Það væri skemmtilegt að ná 9.000 þátttakendum í "Góðverk gleðja" á Facebook fyrir vikulok.