Við fáum fréttir af fjölda skemmtilegra og eftirtektarverðra verkefna á Góðverkadögum í skólum, fyrirtækjum og í skátafélögum um allt land.
Hjá Sjóvá falla Góðverkadagarnir inn í Hrósdaga fyrirtækisins og hafa nær 500 starfsmenn fyrirtækisins sent hrós til samstarfsfélaga ásamt útskýringum á hrósinu. Skemmtileg góðverk í garð samstarfsfélaga þar á ferð.
Einn af bestu túlkunum í Alþjóðahúsinu á Akureyri ákvað í dag, eftir að hafa setið góðan part úr degi og túlkað í mjög erfiðu máli, að hann ætlaði ekki að rukkar fyrir túlkunina. Hann sagði að þar sem að hann hefði nú sjálfur eitt sinn verið í þessari sömu stöðu að þurfa á túlkun að halda þá vildi hann gefa eitthvað til baka. Þetta er algjörlega frábær hugsunarháttur og kunnum við í Alþjóðahúsi honum okkar bestu þakkir fyrir.
Nokkrir galvaskir strákar á öðru ári í Verzlunarskólanum ætla að taka sig til og labba í skólann á föstudagsmorguninn næstkomandi. Það væri ekki frásögu færandi nema hvað að þeir ætla að hefja gönguna í Reykjanesbæ og labba því alla aðfaranótt föstudagsins. Með þessu uppátæki ætla þeir að safna pening fyrir Mæðrastyrksnefnd sem liður í Góðgerðardegi VÍ. Þegar þetta er skrifað hafa þegar safnast tæplega 100.000 krónur sem munu renna óskipt til Mæðrastyrksnefndar.
Drekaskátar eru á aldrinum 7. – 9. ára og víða um land hafa þeir tekið virkan þátt í góðverkadögunum. Hópur Drekaskáta í Hafnarfirði fór út í rok og rigningu á mánudaginn og týndu helling af rusli. Lögðu sko sitt af mörkum til að fegra bæinn sinn. Drekaskátar í Mosfellsbæ hafa verið sérstaklega duglegir við að gera góðverk heima hjá sér, ein stúlka kom mömmu sinni á óvart og tók upp úr uppþvottavélinni og gekk frá, önnur mokaði helling í hesthúsinu og ein úr hópnum kom óvænt með köku handa öllum á skátafund í tilefni afmælis síns.
Í Fálkaskátasveitinni Skeifunni á Akureyri eru eldhressar 10. - 12. ára stelpur. Þær fóru í heimsókn á elliheimilið Hlíð og sungu og spiluðu fyrir heimilisfólkið.