Hörður Zóphaníasson, fyrrverandi skólastjóri og skátaforingi sendi okkur þetta fallega ljóð um Góðverk dagsins!
Dagarnir koma til mín - og fara
Dagarnir rísa, dagarnir koma og fara,
dagarnir mislyndir fjölbreytni ekki spara.
Hver og einn dagur góðverk í fangi sér felur,
framkvæmd þeirra í hendurnar á mér selur.
Dagurinn vaknar með fangið fullt af regni,
ég fæst ekkert um það, en kallinu hiklaus gegni,
regnbarinn, hrakinn skal dagsins góðverk gera,
og gleðina finn ég lifandi hjá mér vera.
Dagurinn kemur með fangið fullt af snævi,
fannbarinn veit ég í dag er einmitt við hæfi
gaddi að mæta með góðverki dagsins og hljóta
gleði í hjarta, yl af hamingju njóta.
Dagurinn heilsar með fangið fullt af vindi,
finn ég í storminum hvernig það skapar yndi,
að ganga inn í daginn og góðverk af hendi inna,
gleðinnar rennsli í blóðríkum æðunum finna.
Dagurinn birtist með fangið fullt af vori,
fuglarnir kvaka og sólskinið létt er í spori.
Blómálfar fagna, er sjá þeir að glaður gengur
til góðverka dagsins sólroðin stúlka og drengur.
Já, dagarnir fæðast, dagar af ýmsum gerðum,
dagar, sem bera allir á sínum herðum
góðverkakörfuna, hafa að marki og miði
mannheim að bæta - að verða öðrum að liði.
H. Z.