Nýjustu góðverkin

28.02.2011
Birta Líf, María Rós og Hildur Helma, 245 Sandgerði
Við vinkonurnar notuðum vetrarfríið okkar í skólanum í að perla og lita. Svo gengum við í hús í hverfinu okkar og gáfum fólki myndir og perlur sem við vorum búnar að strauja:)
MEIRA
26.02.2011
44 ára kona, 105 Reykjavík
Mættum í vinnu á laugardagsmorgni og þá hafði ein ljósmóðirin komið við í bakaríi fyrir okkur öll á deildinni, 10 mín. síðar mætir önnur ljósmóðir með aðrar eins veitingar. Það var enginn svangur á fæðingadeildinni þennan fallega laugardagsmorgun. ...
MEIRA
Bandalag íslenskra skáta
Samstarfsaðilar:
Stöð 2BylgjanVísirSkýrr

Nemendur Menntaskólans við Sund vinna góðverk.

18.02.2009Mynd úr Fréttablaðinu í morgun

Í Fréttablaðinu í morun var frétt um nemendur annars til fjórða bekkjar í Menntaskólanum við Sund, sem í dag leggja í dag niður hefðbundið skólastarf og vinna fjölbreytt launuð störf.

Nemendur annars til fjórða bekkjar í Menntaskólanum við Sund leggja í dag niður hefðbundið skólastarf og vinna fjölbreytt launuð störf. Afraksturinn mun renna til starfsemi Barnaheillum í Kambódíu. Verkefnið kallast dagsverk og er þetta í fjórða sinn sem nemendur skólans styðja Barnaheill með þessum hætti.

"Nemendurnir útvega sér vinnu fyrir daginn og kemur ýmislegt til greina. Einn bekkurinn var snöggur til og mun vera með litla bílaþvottastöð hjá Heklu. Aðrir nemendur fara í áheitaferð á Esjuna og svo er alltaf hægt að taka til í herberginu sínu," segir Gísli Þór Sigurþórsson stærðfræðikennari kíminn en hann hefur umsjón með verkefninu. "Þá eru margir nemendur í vinnu með skóla og hafa þeir oft getað samið við vinnuveitendur sína um að láta eitthvað af hendi rakna gegn vinnuframlagi umræddan dag."

Gísli segir að ögn erfiðara hafi verið fyrir nemendur skólans að útvega sér vinnu í ár miðað við undanfarin ár og rekur það til efnahagsástandsins. "Við bendum krökkunum þó á að nota hugmyndaflugið og fara til að mynda í ferð í Sorpu fyrir ættingja og vini eða að bjóða fram krafta sína í önnur verk. Þá mun Árni Freyr Þorsteinsson, ungur nemandi við skólann, láta allan hagnað af bolum sem hann selur í Nakta apanum dagana 17. til 19. febrúar renna til Barnaheilla svo dæmi séu tekin."

Gísli á sjálfur hugmyndina að deginum en hann segir sams konar verkefni algeng á Norðurlöndunum. "Þar hef ég til dæmis rekist á nemendur á lestarstöðvum sem selja bollur og annað til styrktar góðu málefni."

Gísli segir það hafa komið til álita í ljósi efnahagshrunsins að styðja frekar innlent verkefni. "Við urðum síðan sammála um að ekki mætti gleyma þeim sem eiga erfitt uppdráttar úti í heimi jafnvel þótt við eigum bágt sem stendur. Við ákváðum því að halda áfram að styðja þetta góða verkefni. Nemendur skólans hafa síðastliðin þrjú ár safnað þremur milljónum króna og hafa peningarnir verið notaðir til að byggja skóla, þjálfa kennara, búa til námsefni og halda starfi Barnaheilla í Kambódíu við."

vera@frettabladid.is