Nýjustu góðverkin

28.02.2011
Birta Líf, María Rós og Hildur Helma, 245 Sandgerði
Við vinkonurnar notuðum vetrarfríið okkar í skólanum í að perla og lita. Svo gengum við í hús í hverfinu okkar og gáfum fólki myndir og perlur sem við vorum búnar að strauja:)
MEIRA
26.02.2011
44 ára kona, 105 Reykjavík
Mættum í vinnu á laugardagsmorgni og þá hafði ein ljósmóðirin komið við í bakaríi fyrir okkur öll á deildinni, 10 mín. síðar mætir önnur ljósmóðir með aðrar eins veitingar. Það var enginn svangur á fæðingadeildinni þennan fallega laugardagsmorgun. ...
MEIRA
Bandalag íslenskra skáta
Samstarfsaðilar:
Stöð 2BylgjanVísirSkýrr

Nemendur í Versló taka þátt í Góðverkadögum

19.02.2009Nemendur 4.D í Versló - Mynd Fréttablaðið

Í Fréttablaðinu í morgun var sagt frá nemendum Versló sem taka þátt í Góðverkadögum og ætla að ganga fyrir gott málefni og fara fótgangandi í skólann frá Keflavík í tilefni Góðverkadaganna.

Ganga fyrir gott málefni

Sjö bekkjarbræður í Versló fara fótgangandi í skólann frá Keflavík í tilefni Góðverkadaganna, sem nú standa yfir. Hvatt er til náungakærleiks og vináttu.

"Við treystum á að veðurguðirnir verði góðir við okkur," segir Gunnar Ingi Magnússon, einn af sjö bekkjarbræðrum í 4. bekk D í Verslunarskóla Íslands, sem í gær voru í óða önn að búa sig undir að fara fótgangandi í skólann í morgun, alla leið frá Keflavík. Þessi uppfærða útgáfa af Keflavíkurgöngunni er liður í Góðverkadögunum sem standa yfir fram á sunnudag.

Að sögn Gunnars hefur verið mikið um góðverk og áheit í Versló í vikunni. "Fólk er að vaxa á sér bringuna, borða paintball-kúlur, syngja ABBA-lög í búningum og ég veit ekki hvað og hvað, allt í þágu góðs málefnis," segir Gunnar, en allt fé sem safnast í skólanum rennur rakleiðis til Mæðrastyrksnefndar. Gunnar segir algengt að nemendur heiti fimm hundruð til þúsund krónum á skólafélaga sína, auk þess sem leitað er til fyrirtækja með von um styrki.

Strákarnir léku svipaðan leik fyrir ári síðan. Þá gengu þeir frá Mosfellsbæ niður í Versló í hávaðaroki og grenjandi rigningu. "Við vorum ansi hraktir eftir fjögurra tíma göngu, en mættum þó á réttum tíma í skólann klukkan tíu mínútur yfir átta," segir Gunnar og skellir upp úr. Stefnan hjá þeim félögum var að leggja af stað frá heimili vinkonu þeirra í Keflavík klukkan 22.00 í gærkvöldi. "Kannski tökum við okkur örstutta pásu heima hjá bekkjarsystur okkar í Garðabænum og fáum okkur kakó, en bara ef tími gefst til. Við viljum alls ekki koma of seint í skólann!"

365 miðlar er eitt margra fyrirtækja sem taka þátt í Góðverkadögunum, sem eru haldnir í fyrsta skipti í ár. Þeir byggja á nær aldagamalli hefð og loforði skáta um að gera að minnsta kosti eitt góðverk á dag, og hvetja þannig landsmenn til athafna og umhugsunar um að láta gott af sér leiða, sýna náungakærleik, vináttu, hjálpa öðrum og gera góðverk.

Góðverkadagarnir hafa hlotið góðar viðtökur hjá skólum, fyrirtækjum og á fleiri vígstöðvum. Komið hefur verið í gagnið vefsíðunni godverkin.is, þar sem lesendum gefst meðal annars færi á að segja frá hversdagslegum góðverkum sem þeir hafa framið eða orðið vitni að, auk þess að lesa um nýjustu góðverkin í fyrirtækjum, skátunum og skólunum.

kjartan@frettabladid.is