Nýjustu góðverkin

28.02.2011
Birta Líf, María Rós og Hildur Helma, 245 Sandgerði
Við vinkonurnar notuðum vetrarfríið okkar í skólanum í að perla og lita. Svo gengum við í hús í hverfinu okkar og gáfum fólki myndir og perlur sem við vorum búnar að strauja:)
MEIRA
26.02.2011
44 ára kona, 105 Reykjavík
Mættum í vinnu á laugardagsmorgni og þá hafði ein ljósmóðirin komið við í bakaríi fyrir okkur öll á deildinni, 10 mín. síðar mætir önnur ljósmóðir með aðrar eins veitingar. Það var enginn svangur á fæðingadeildinni þennan fallega laugardagsmorgun. ...
MEIRA
Bandalag íslenskra skáta
Samstarfsaðilar:
Stöð 2BylgjanVísirSkýrr

Stjörnur á Góðverkadögum í Grindavík

20.02.2009Stjörnuhópurinn í Grindavík

Stjörnuhópur sem er elsti árgangur heilsuleikskólans Króks í Grindavík, tók þátt í Góðverkadögum og tíndi upp rusl í kringum "blokkina hennar Birnu",  því Birna hafði nýlega sagt frá því í blaðaviðtali að það væri mikið rusl á lóðinni í kringum blokkina.

Þar sem hún býr ein í þessari stóru blokk fannst okkur ekki veita af að aðstoða hana við verkið. Þessi ákvörðun var tekin á umhverfisráðsfundi barnanna með leikskólastjóra nú í morgun þar sem aðalumræðuefnið var ruslið sem frá okkur fer, hvaðan það kemur og hvert það fer. Farið var strax af stað eftir fundinn og hæg voru heimatökin því blokkin er við hliðina á leikskólanum.

Við tókum myndir og er hópurinn búinn að skrifa bréf með nokkrum myndum til Jónu Kristínar bæjarstjóra þar sem henni er bent á ástandið og hún beðin um að tala við Ingvar bæjartæknifræðing um að gera eitthvað í málinu. ( sjá fleiri myndir: http://krokur.skolar.is/Myndasafn/416/1/default.aspx )

Hulda Jóhannsdóttir - leikskólastjóri
Heilsuleikskólanum Króki - 240 Grindavík
http://krokur.skolar.is/