Í tilefni Góðverkadaganna ákváðu Dreka- og Fálkaskátar í skátafélaginu Kópum að gera að minnsta kosti eitt góðverk á dag alla vikuna. Dreka- og Fálkaskátarnir sem eru á aldrinum 8 - 13 ára fengu allir sérútbúið blað til að skrá góðverkin sín á. Þar átti að setja dagsetningu, tilgreina góðverkið og að lokum átti einhver fullorðinn að kvitta fyrir. Á Góðverkadaginn, sunnudaginn 22. febrúar er opið hús í skátaheimilinu og þá geta allir lesið og séð afrakstur þessara duglegu skáta.
Skátarnir undirbjuggu verkefnið vel, fyrst ræddu þeir og veltu fyrir sér spurningunni: Hvað er góðverk??? Margar tillögur komu fram. Skátarnir komust að þeirri niðurstöðu að fyrst af öllu er góðverk eitthvað sem maður gerir fyrir aðra en ekki bara sjálfan sig. Til dæmis ef maður tekur sinn eigin matardisk af matarborðinu eftir máltíð er það ekki góðverk. Ef maður býr um sitt eigið rúm er það heldur ekki góðverk. Skátarnir ræddu líka við foreldra sínu um hvað fælist í því að gera góðverk og hvað væri góðverki. Góðverk skátanna í vikunni hafa verið af ýmsum toga.
Hér koma nokkur dæmi:
Fór út með ruslið!!
Hélt á innkaupapoka fyrir mömmu!!
Raðaði skónum!!
Fór út með litla bróður í skemmtilega útiveru!!
Las fyrir ömmu og hinar konurnar á spítalanum!!
Hjálpaði litlu frænku minni yfir götu!!
Knúsaði fjölskylduna!!
Það er alveg á kristaltæru að þeir sem hafa byrjað á því að gera góðverk daglega hætta því aldrei, því góðverk gleðja. Okkur reiknast til að Dreka- og Fálkaskátar í Kópum hafi unnið að minnsta kosti 840 góðverk þessa vikuna.
Skátakveðja,
Magnea Tómasdóttir
Deildarforingi
Drekaskáta í Kópum