Nýjustu góðverkin

28.02.2011
Birta Líf, María Rós og Hildur Helma, 245 Sandgerði
Við vinkonurnar notuðum vetrarfríið okkar í skólanum í að perla og lita. Svo gengum við í hús í hverfinu okkar og gáfum fólki myndir og perlur sem við vorum búnar að strauja:)
MEIRA
26.02.2011
44 ára kona, 105 Reykjavík
Mættum í vinnu á laugardagsmorgni og þá hafði ein ljósmóðirin komið við í bakaríi fyrir okkur öll á deildinni, 10 mín. síðar mætir önnur ljósmóðir með aðrar eins veitingar. Það var enginn svangur á fæðingadeildinni þennan fallega laugardagsmorgun. ...
MEIRA
Bandalag íslenskra skáta
Samstarfsaðilar:
Stöð 2BylgjanVísirSkýrr

Góðverk gleðja, gerum alla daga að góðverkadögum

22.02.2009Margrét Tómasdóttir - Skátahöfðingi

Góðverk gleðja, gerum alla daga að góðverkadögum

Stofnandi skátahreyfingarinnar Robert Baden-Powell og kona hans Olave fæddust bæði 22. febrúar og er sá dagur mikið notaður af skátum til að gera sér dagamun. Víða um heim nota skátar daginn til þess að hugsa um náungann með einum eða öðrum hætti. Heimshreyfing skáta kallar daginn Thinking day – dag umhugsunar og hvetur skáta til að staldra við og hugsa um það sem mikilvægt er í lífinu og rétta öðrum hjálparhönd, gera góðverk.

Í skátalögunum lofa skátar m.a. að vera hjálpsamir, traustir og tillitssamir auk þess sem allir skátar lofa í skátaheitinu að hjálpa öðrum til þess að halda skátalögin. Það er því augljóst að allt frá upphafi hefur sú hugsun að gera góðverk verið ríkjandi í skátastarfinu

Hvað dettur fólki í hug þegar talað er um skáta og góðverk!   Fyrsta myndin hjá mörgum er skáti að hjálpa gamalli konu yfir götu.    Skopmyndir hafa verið teiknaðar þar sem ákafir skátar draga gamlar konur yfir götu, þær skulu fara yfir hvort sem þær vilja eða ekki.

Atriði sem virðast vera lítil við fyrstu sýn geta verið ansi stór og jafnvel mjög mikilvæg þegar betur er að gáð.  Það situr í mér frásögn ungs manns sem ég heyrði fyrir nokkrum árum.  Hann hafði alist upp við mikla erfiðleika í sinni fjölskyldu. Ósætti var mikið á heimili hans og lítið um uppbyggileg samskipti.  Stuðningur sá og umhyggja sem heimilið á að veita  börnum var ekki að finna á hans heimili.  En það var "góða konan" á 3. hæðinni í blokkinni sem var hans bjargvættur.  Alltaf þegar hann mætti henni í stigaganginum talaði hún við hann, spurði hvernig gengi í skólanum, brosti og sýndi viðfangsefnum hans áhuga.  Hann þekkti orðið hvenær hún var á ferðinni, hann reyndi að vera á ferð þegar von var á henni, hljóp jafnvel fram þegar hann heyrði í henni.  Þetta voru ljósu punktarnir í hans tilveru og í minningunni er bjart yfir samskiptum þeirra.

Hann velti því fyrir sér sem ungur maður hvort þessi kona hafi gert sér grein fyrir því hvað hún var mikilvæg í hans uppeldi, hvort hún hafi gert sér grein fyrir hversu góðverk hennar var stórt.  Hans mat var að hún hafi leitt hann á rétta braut í lífinu, spurt þeirra spurninga sem þurfti að spyrja ungan dreng, -  hver var hans stefna í lífinu?

Er einhver í þínu umhverfi sem þarf á góðverki þínu að halda!

Margrét Tómasdóttir
Skátahöfðingi Íslands