Nýjustu góðverkin

28.02.2011
Birta Líf, María Rós og Hildur Helma, 245 Sandgerði
Við vinkonurnar notuðum vetrarfríið okkar í skólanum í að perla og lita. Svo gengum við í hús í hverfinu okkar og gáfum fólki myndir og perlur sem við vorum búnar að strauja:)
MEIRA
26.02.2011
44 ára kona, 105 Reykjavík
Mættum í vinnu á laugardagsmorgni og þá hafði ein ljósmóðirin komið við í bakaríi fyrir okkur öll á deildinni, 10 mín. síðar mætir önnur ljósmóðir með aðrar eins veitingar. Það var enginn svangur á fæðingadeildinni þennan fallega laugardagsmorgun. ...
MEIRA
Bandalag íslenskra skáta
Samstarfsaðilar:
Stöð 2BylgjanVísirSkýrr

Góðverkadagar 2011

08.02.2011

Góðverkadagar verða haldnir um land allt dagana 21. til 25. febrúar 2011.

Fjöldi fyrirtækja, framhaldsskóla, grunnskóla og leikskóla mun taka þátt í Góðverkadögunum í ár.

Markmið Góðverkadaga er að hvetja landsmenn til athafna og umhugsunar um að láta gott af sér leiða, sýna náungakærleik, vináttu, hjálpa öðrum og gera góðverk.

Framkvæmdastjórar, starfsmannastjórar, formenn starfsmannafélaga, formenn nemendafélaga, skólastjórnendur og kennarar eru hvattir til að hafa samband við Verkefnisstjórn Góðverkadaga ef óskað er eftir aðstoð eða efni vegna verkefnisins.

Góðverkadagar eru einnig á Facebook síðunni Góðverk gleðja