Nýjustu góðverkin

28.02.2011
Birta Líf, María Rós og Hildur Helma, 245 Sandgerði
Við vinkonurnar notuðum vetrarfríið okkar í skólanum í að perla og lita. Svo gengum við í hús í hverfinu okkar og gáfum fólki myndir og perlur sem við vorum búnar að strauja:)
MEIRA
26.02.2011
44 ára kona, 105 Reykjavík
Mættum í vinnu á laugardagsmorgni og þá hafði ein ljósmóðirin komið við í bakaríi fyrir okkur öll á deildinni, 10 mín. síðar mætir önnur ljósmóðir með aðrar eins veitingar. Það var enginn svangur á fæðingadeildinni þennan fallega laugardagsmorgun. ...
MEIRA
Bandalag íslenskra skáta
Samstarfsaðilar:
Stöð 2BylgjanVísirSkýrr

Duglegir krakkar í Síðuskóla

23.02.2010


Krakkarnir í Síðuskóla á Akureyri voru sérlega dugleg að gera góðverk fyrsta dag Góðverkadaganna.

Flest þeirra hafa eflaust náð sér í Góðverkadagbók hér á vefnum og mörg hafa skráð góðverkin sín hér á síðuna.

Nokkrir 7 ára nemendur sendu okkur upplýsingar um þessi fallegu góðverk:

Ég gekk frá eftir kvöldmatinn, setti í uppþottavélina ;)
Ég hjálpaði til við að gera kaffitíma.
Ég hjálpaði mömmu minni við að setja lak á rúmið hennar. Ég var líka jákvæður og ekki óþekkur.
Ég fór út með rusl fyrir mömmu og pabba og ég passaði líka litla bróður minn.
Ég hjálpaði afa við að skafa bílinn hans. Eins mokaði ég snjó af tröppunum hans.
Ég hjálpaði til við að passa yngri systkini mín.
Ég las tvær bækur fyrir systur mínar sem eru yngri en ég. Þær voru mjög glaðar.
Ég tók upp úr uppþvottavélinni fyrir mömmu og pabba.
Færði mömmu minni köku sem ég bakaði í heimilisfræði í skólanum mínum, ég færði henni líka safa og brauðsneið.
Bjó um rúm pabba og mömmu.
Ég fór með ruslið út fyrir mömmu.
Ég fór út með ruslið.