Nýjustu góðverkin

22.02.2012
59 ára kona, 108 Reykjavík
Hljóp út á eftir manni sem hafði gleymt vörunum sínum í bakaríinu.
MEIRA
22.02.2012
Þórdís Erla, Reykjavík
Gaf Hamrahlíðarkórnum flöskur og dósir.
MEIRA
Bandalag íslenskra skáta
Samstarfsaðilar: Bylgjan Vísir Stöð 2

Góðverkavika á leikskólanum Grænuvöllum á Húsavík.

24.02.2011

Leikskólabörnin á Grænuvöllum  taka þáttt í Góðverkadögum, það var svo gaman hjá þeim á Góðverkadögum í fyrra að það kom ekki annað til greina en að taka þátt í verkefninu í ár.

Börnin hafa frá ýmsu að segja um góðverkin sín í samverustund á hverjum morgni , þá ræða þau um góðverkin sem þau framkvæmdu að leikskóla loknum.  Til dæmis tóku sum til í heberginu sínu, fóru út með ruslið, vöskuðu upp, settu í og tóku úr þvottavélinni og feira mjög áhugavert fyrir þau. 

Mikilvægast er að þau fái að sýna og segja frá hversu dugleg þau geta verið heima.

Góðverk eru framkvæmd meðvitað daglega til dæmis að ganga frá eftir sig og hjálpa öðrum að gera slíkt hið sama, hjálpast að í fataklefa, leggja á borðið, ganga frá eftir matinn, hjálpa til í eldhúsinu við uppvaskið og fl. mjög skemmtilegt.  Hugga samnemanda sinn, þau eldri hjálpuðu þeim yngri t.d. í útivist og svo fengu þau að fara á milli deilda og aðstoða kennarana. 

Allir eru vinir og allir eru að hjálpast að. - Foreldrar barnanna eru hvattir til að taka þátt í Góðverkavikunni með leikskólanum.

Vissulega er útfærsla kennara misjöfn og fer mikið eftir aldri og samsetningu nemendahópsins. 

En markmið leikskólakennaranna eru skýr: að hvetja nemendur til athafna og umhugsunar um að láta gott af sér leiða, sýna náungakærleik, vináttu, hjálpa öðrum og gera góðverk.  Og þetta er einmitt það sem nemendur eru að gera í dag og alla þessa viku með hvatningu og aðstoð fullorðinna.

Bara sem dæmi þá buðust tveir nemendur til að vaska upp með Stínu í eldhúsinu eftir morgunverðinn, þau taka hlutverki sínu mjög alvarlega.

Góð skemmtun og ánægjulegir góðverkadagar á Grænuvöllum á Húsavík.