Börnin á Hulduheimum í leikskólanum Fífuborg í Grafarvogi eru 4 - 5 ára og hafa heldur betur verið dugleg að vinna að góðverkum. Á dögunum fóru þau í heimsókn á ellliheimilið Eir í Grafarvogi og sungu fyrir heimilisfólk.
Einnig hafa börnin sent bréf til tveggja drengja sem hættu hjá okkur í vetur og vildu spyrja þá hvernig væri á nýja leikskólanum og hvernig gengi hjá þeim, einnig létu þau fylgja mynd til þeirra.
Við höfum mikið rætt um hvað góðverk eru og hafa börnin á deildinni Hulduheimum verið dugleg að vinna að því bæði heima og í leikskólanum, til dæmis að aðstoða hvort annað við matarborð og hjálpa yngri börnum við að klæða sig svo nokkuð sé nefnt.
Mjög gaman að sjá hversu virk þau hafa verið og meðvituð um þetta málefni.
Kveðja börn og starfsfólk Hulduheima.