Nýjustu góðverkin

22.02.2012
59 ára kona, 108 Reykjavík
Hljóp út á eftir manni sem hafði gleymt vörunum sínum í bakaríinu.
MEIRA
22.02.2012
Þórdís Erla, Reykjavík
Gaf Hamrahlíðarkórnum flöskur og dósir.
MEIRA
Bandalag íslenskra skáta
Samstarfsaðilar: Bylgjan Vísir Stöð 2

Góðverk gleðja!

25.02.2011

Ef þú veist ekki í hvað þú átt að fara að morgni, farðu þá allavega í gott skap, það klæðir alla.

Góðverkadögum hefur borist fjöldi spakmæla, orðtaka og hugleiðinga sem gott er að gefa gaum þennan síðasta dag Góðverka vikunnar.

"Góðverkin eru smitandi"

"Í þessum heimi er það ekki það sem við tökum okkur, heldur það sem við gefum frá okkur sem gerir okkur rík"

"Góðverk eru með því besta sem maður gefur. Þau þurfa ekki að vera stór en geta samt skipt miklu máli"

"Góðverk eru eins og keðjubréf, þú gerir eitt góðverk og mátt vænta þess að fá fjöldan allan til baka"

"Enginn getur hjálpað öllum en allir geta hjálpað einhverjum"

"Ekki leita af góðverkum þau eru allstaðar í kringum þig þú getur hjálpað hvar sem er"

"Bíddu ekki eftir einhverjum sérstökum tækifærum til að gera góðverk. - Gríptu það sem fyrir hendi liggur"

"Hafirðu ekki oft fundið gleðina sem felst í að gera góðverk, hefurðu vanrækt mikið og mest þó sjálfan þig" - A. Neilen -


Gleðjum aðra !

Það kostar ekkert eða bara pínulítið að gleðja aðra - faðmlag, hrós, hlýtt bros.

Í snjókomu er hægt að eiga leið framhjá vinum sem eiga erfitt með að moka snjó af tröppum/stétt eða skafa bílinn, eða jafnvel koma þeim á óvart sem geta það sjálfir og verið búin að því þegar þeir koma út

Það er hægt að versla fyrir þá sem eiga ekki auðvelt með að komast að heiman eins og eldri, öryrkjar, fatlaðir, lasnir, einstæðir foreldra sem eru oft hreinlega fastir heima yfir litlum börnum og oft á tíðum með lasin börn.

Það er hægt að slá á þráðinn til einhvers sem maður hefur ekki heyrt í lengi, það er hægt að koma við í bakaríi og droppa svo við hjá vinum, það er svo ótalmargt hægt að gera til að gleðja aðra.


Lítið ljóð í tilefni Góðverkadaga

   Ég veit - er ég dey - svo að verði ég grátinn,
   þar verðuru eflaust til taks.
   En ætlirðu blómsveig að leggj´á mig látinn
   - þá láttu mig fá hann strax.

   Og mig, eins og aðra, sem afbragðsmenn deyja,
   í annála skrásetur þú;
   og hrós um mig ætlarðu sjálfsagt að segja
   en - segðu það heldur nú.

   Og vilji menn þökk mínum verðleikum sína,
   þá verður það eflaust þú,
   sem sjóð lætur stofna í minningu mína,
   en - mér kæmi hann betur nú.

   Og mannúðarduluna þekki ég þína,
   sem þenurðu dánum í hag.
   En ætlirð´að breiða yfir brestina mína,
   þá breidd´yfir þá í dag.

           Góðverk gleðja - Gleðjum aðra!