Dagana 21. – 25. febrúar nk. verða Góðverkadagar haldnir um land allt undir yfirskriftinni „Góðverk dagsins“ .
Góðverkadagarnir eru ný útfærsla á nær aldagamalli hefð og loforði skáta um að gera að minnsta kosti eitt góðverk á dag.
Verkefnið miðast við að árlega verði haldnir sérstakir Góðverkadagar seinnipart febrúarmánaðar með virkri þátttöku allra landsmanna.
Á meðal vinnustaða sem létu okkur vita af þátttöku í Góðverkadögunum í fyrra voru: 365 miðlar, Akureyrarbær, Ás styrktarfélag, Brim, Brimborg, Brunnhóll ferðaþjónusta, BUGL, Bylgjan, Bæjarskrifstofur Mosfellsbæjar, Dagþjálfun Hrafnistu í Reykjavík, Fiskistofa, Fjarðarbyggð, Fjárstoð, Flugleiðahótel, Frístundamiðstöðin Kampur, Frumherji hf, Hagar, Hagkaup, HEKLA, Höldur ehf, Intrum, Iss Ísland, Íslenska Gámafélagið ehf, Kjarnavörur, Laugar, Lánasjóður íslenskra námsmanna, LOGOS, Lýðheilsustöð, Lýsing hf, Mecca spa, Menn og mýs ehf., Neistinn styrktarfélag, Neyðarlínan ohf., Ó. Johnson & Kaaber ehf., Rauði Kross Íslands, Rekstrarvörur ehf., Sensa ehf., Sjóvá, Sólheimar Grímsnesi, Stöð2, Sýslumaðurinn á Ísafirði, Teris, Tollstjóri, Umferðarstofa, Umhverfisstofnun, VBS, visir.is, Vítamín, World Class, Þrek ehf., Öldrunarheimili Akureyrar
Einnig voru mjög margir framhaldsskólar, grunnskólar, leikskólar og skátahópar með ýmiskonar verkefnavinnu og Góðverka dagskrárgerð þessa daga.
Síðast en ekki síst tók almenningur virkan þátt, einstaklingar, fjölskyldur og vinahópar fundu góðvild sinni farveg á Góðverkadögum, tóku virkan þátt og létu gott af sér leiða.
Bylgjan, Stöð2, visir.is og Fréttablaðið eru samstarfsaðilar okkar í kynningu og umfjöllun um Góðverkadagana.
Góðverk gleðja
Góðverk eru þeirrar náttúru að þau fjölga sér á ógnarhraða, gerendum, þiggjendum og öllum sem nálægt þeim standa til gleði og ánægju.
Velvildin og vináttan sem felst í að rétta öðrum hjálparhönd, óumbeðið og án skilyrða er dýpri og sannari en almenn hjálpsemi eða dagleg aðstoð – við köllum það góðverk.
Góðverk þurfa ekki að vera stór til að skipta máli því það er hugurinn og frumkvæðið sem máli skipta.
Umbunin getur falist í þakkarorðum eða einlægu brosi þess sem þiggur, en ríkulegasta umbunin er þó eigin vellíðan yfir að hafa orðið að liði – unnið góðverk.
Góðverkadagur skáta
Skátar um allan heim hafa haldið 22. febrúar hátíðlegan, dagurinn er fæðingadagur Baden Powell stofnanda skátahreyfingarinnar og er erlendis kallaður „Thinking day“ Íslenskir skátar vilja láta athafnir fylgja hugsunum og því köllum við 22. febrúar Góðverkadaginn.
Allir skátar gera að minnsta kosti eitt góðverk á dag alla daga ársins, en Góðverkadagana viljum við einnig nýta til að hvetja aðra til umhugsunar og athafna um að láta gott af sér leiða og gera góðverk.