Nýjustu góðverkin

28.02.2011
Birta Líf, María Rós og Hildur Helma, 245 Sandgerði
Við vinkonurnar notuðum vetrarfríið okkar í skólanum í að perla og lita. Svo gengum við í hús í hverfinu okkar og gáfum fólki myndir og perlur sem við vorum búnar að strauja:)
MEIRA
26.02.2011
44 ára kona, 105 Reykjavík
Mættum í vinnu á laugardagsmorgni og þá hafði ein ljósmóðirin komið við í bakaríi fyrir okkur öll á deildinni, 10 mín. síðar mætir önnur ljósmóðir með aðrar eins veitingar. Það var enginn svangur á fæðingadeildinni þennan fallega laugardagsmorgun. ...
MEIRA
Bandalag íslenskra skáta
Samstarfsaðilar:
Stöð 2BylgjanVísirSkýrr

Góðverk í fyrirtækjum

Góðverkadagar í fyrirtækjum hafa að markmiði að bæta starfsanda og samvinnu á meðal starfsfólks, með því að hvetja til hjálpsemi og vináttu – að gera góðverk.

Mörg fyrirtæki verða með góðverkadagskrá dagana 21. – 25. febrúar. Starfsfólk reynir þá eftir bestu getu að gera að minnsta kosti eitt góðverk á dag, vitandi sem er að góðverk eru þeirrar náttúru að fjölga sér á ógnarhraða, gerendum, þiggjendum og öllum sem nærri standa til gleði og ánægju.

Umbunin getur falist í þakkarorðum eða einlægu brosi þess sem þiggur, en ríkulegasta umbunin er þó oftast eigin vellíðan yfir að hafa orðið að liði – unnið góðverk.

Starfsmannahópar, deildir eða vinnuflokkar geta einnig tekið sig saman og komið samstarfsfólki sínu eða viðskiptavinum á óvart með vel undirbúnu en „óvæntu“ góðverki.

Stoðefni Góðverkafyrirtækja:

Kynningarbréf til stjórnenda. - Kynningarbréf til starfsmanna.

Merki Góðverk dagsins; Útg.01 - Útg.02 - Veggspjald

Allir starfsmenn sem skrá sig hér að neðan fá send „góðverkavefkort“ til staðfestingar á þátttöku í góðverkadögum síns fyrirtækis.