Allir skátar gera að minnsta kosti eitt góðverk á dag.
Að gera góðverk er svo nátengt skátaheitinu að okkur finnst það einfaldlega sjálfsagt að gera góðverk daglega, við þurfum varla að hugsa um það.
Góðverkadagarnir eru ný útfærsla á nær aldagamalli hefð og loforði okkar skátanna um að gera að minnsta kosti eitt góðverk á dag.
Skátar vilja sýna gott fordæmi, en einnig hvetja aðra til athafna og umhugsunar um að láta gott af sér leiða, sýna náungakærleik, vináttu, hjálpa öðrum og gera góðverk.
Í flestum skátafélögum og skátaflokkum landsins verður fjölbreitt dagskrá alla góðverkadagana
Hér eru nokkur dæmi um dagskrárverkefni skáta á góðverkadögunum.
Góðverkapóstaleikurinn (flokkar-sveitir-félög)
Póstaleikurinn byggir á 4-10 póstum sem hægt er að velja úr, allir póstar með góðverkaþema.
Góðverkagangan (flokkar-sveitir-félög)
Hreingerningaferð um bæinn eða hverfið, hreinsað upp smárusl og eftirhreytur eftir flugelda og áramót.
Hver flokkur eða sveit fær úthlutað ákveðnu svæði.
Gönguna getur verið skemmtilegt að enda með kakóveislu, varðeldi eða kvöldvöku félagsins.
Góðverkadagbókin (skátar - flokkar)
Allir í flokknum fá Góðverkabók fyrir vikuna og skrá í hana öll góðverk sem þeir vinna á hverjum degi fram að næsta fundi. Þá er sameiginlega farið yfir góðverk hvers og eins og upplifun skátans af að hafa unnið góðverkin.
Góðverkaútilegan 25. – 27. feb. (sveitir-félög)
Þema útilegunnar er „Góðverk“
Allir fá Góðverkabók og blýant og skátunum ber að skrá stór og smá góðverk sín í útilegunni í bókina alla útileguna.
Svo er farið í Góðverkapóstaleikinn, Góðverkagönguna, haldin Góðverkakvöldvaka þar sem öll skemmtiatriðin fjalla um góðverk og síðast en ekki síst upphugsar hver flokkur „Stóra góðverkið“ sem hann ætlar að framkvæma á næstu vikum. Flokkurinn skipuleggur og undirbýranga það í þaula í útilegunni og kynnir sitt verkefni fyrir allri sveitinni.
Góðverkin heim (flokkar)
Flokkurinn finnur í sameiningu út hvaða góðverk hann getur unnið á heimili eða fyrir foreldra og fjölskyldu hvers skáta í flokknum. Verkefnin eru skipulögð og undirbúin á flokksfundum og svo mætir flokkurinn gallvaskur heim til hvers og eins skáta í flokknum einhvern næstu daga og vinnur góðverkið.
Góðverkaleiðin (flokkar-sveitir)
Hver flokkur velur sér 1km. (1000 metra) leið. Á þessari vegalengd (leið) á hann að vinna eins mörg góðverk fyrir aðra og hann getur, góðverkin mega ekki snúa að eða vera fyrir hvern annan í flokknum.Í leiðarlok eru öll góðverkin skráð í flokksbókina.
Verkefnið tekur eina klukkustund og allir flokkarnir þurfa að vera komnir á ákv. stað (skátaheimili, varðeldalaut) í kakó, varðeld eða kvöldvöku einni klukkustund eftir að lagt var af stað.