Nýjustu góðverkin

27.02.2010
Bjarki Fjalar Guðjónsson, 109 Reykjavík
Ég og pabbi vorum að keyra og urðum vitni að umferðaróhappi. Við buðum fram aðstoð og hjálpuðum við að hringja á112(neyðarlínuna) og biðum eftir lögreglunni.
MEIRA
26.02.2010
Bergþóra, 109 Reykjavík
Vorum á leið í Ölver í skrappferð þegar við lendum í að festa bílinn okkar.
Okkur langar að þakka hjónum frá Borgarnesi sem komu inn afleggjara upp að Ölver hjá Hafnafjalli um klukkan 14.00 í dag og hjálpuðu okkur að losa bílinn okkar. Þau kom...
MEIRA
Bandalag íslenskra skáta
Samstarfsaðilar:
Stöð 2BylgjanVísirSkýrr

Góðverk í skólanum

Góðverkadagarnir eru ný útfærsla á nær aldagamalli hefð og loforði skáta um að gera a.m.k. eitt góðverk á dag.

Góðverkadagar í skólum hafa að markmiði að hvetja börn og ungt fólk  til athafna og umhugsunar um að láta gott af sér leiða, sýna náungakærleik, vináttu, hjálpa öðrum og gera góðverk.
Framhaldsskólar, Grunnskólar og Leiksólar hafa fengið sendar dagskrárhugmyndir og tillögur til að vinna með í skólastarfinu.

Framkvæmdin eða útfærslan er vissulega misjöfn eftir aldri nemenda.  Verkefnin geta tekið eina kennslustund eða verið notuð sem rauður þráður í kennslu eða skólastarfi í nokkra daga, allt eftir aðstæðum og áhuga kennara og nemenda.

Hér má sækja Góðverkadagbókina.

Nemendur eru hvattir til að segja frá og skrá góðverkin sín hér á heimasíðunni.

Hér eru nokkur dæmi um dagskrárhugmyndir sem kennarar geta stuðst við í kennslu og dagskrárgerð, en hverjum kennara er frjálst að þróa þær, útvíkka eða útbúa nýjar sem best henta hans hóp.

Góðverkalistinn - umræður
Hvað er góðverk – stórt og smátt? Umræður í hópum.
Hóparnir skrá allar hugmyndir sem koma upp og hengja þær á töflu eða vegg.
Allir lesa yfir og velja sér góðverk til að inna af hendi – hvort sem er heima eða að heiman.
Markmiðið er að opna augu nemenda fyrir því að það er gefandi að vinna góðverk, en við þurfum líka að geta notið þeirra og tekið við þeim frá öðrum með þakklæti. Það getur verið áhugaverð umræða með börnunum að rifja upp eða huga að hvaða góðverka þau hafi orðið aðnjótandi nýverið.

Góðverkadagbókin - Markmið og framkvæmd góðverka
Kennari styðst við sögu eða eigin umfjöllun og umræður hópsins. Hópurinn setur sér í framhaldi af umræðunum markmið um að hver og einn vinni eitt góðverk á dag. ( í 3-5 daga)
Kennarinn prentar út Góðverkadagbók fyrir hvern nemanda og/eða útbýr spjald/töflu fyrir allan bekkinn með dálk fyrir hvern dag og línu fyrir hvern nemanda. (Góðverkabókina má sækja sem pdf. skjal á vefsíðunni www.godverkin.is)
Á hverjum morgni er haldin góðverkastund þar sem nemendur segja frá góðverki sínu og fá límmiða á spjaldið fyrir hvert unnið góðverk.

Góðverk í sögum og frásögnum
Umræður. Velja sögu eða stuttan kafla úr bók og lesa fyrir nemendur eða láta þá lesa sjálfa.
Nemendur greina hvert góðverkið er. Markmiðið er að opna augu þeirra fyrir því að einstaklingar allt í kringum okkur eru að vinna góðverk á hverjum degi.

Góðverkamyndir eða föndur - umræður
Hver nemandi teiknar mynd sem táknar, lýsir eða minnir á góðverk. Myndirnar eru síðan hengdar upp á vegg eða töflu og hvert nemandi í bekknum segir frá því góðverki sem mynd þess á að lýsa.
Umræður í hópum geta orðið líflegar og innihaldsríkar. Ef tími er nægur má fá hópinn til að túlka hverja mynd eftir að höfundurinn hefur túlkað hana, hinir bekkjarfélagarnir kunna að sjá eitthvað allt annað góðverk út úr myndinni en höfundurinn, þannig koma upp í umræðunni fjöldi góðverka hugmynda.
Í stað þess að teikna myndir, má klippa myndir út úr blöðum, byggja góðverkatákn út kubbum, leir eða öðru föndur efni.

Góðverk - margföldunaráhrif
Kvikmyndin Pay it Forward (12 ára aldurstakmark) - Allir geta látið gott af sér leiða. Myndin sýnir vel margföldunaráhrifin sem felast í ef einhver gerir góðverk fyrir þig þá endurgeldur þú það með því að gera góðverk fyrir tvo aðra.

Góðverk – hlustun í ensku fyrir 9. og 10. bekk
Hér á síðunni er hægt að sækja viðtal þar sem talað er við handritshöfund myndarinnar Pay it Forward. Þar kemur meðal annars fram hvernig hugmyndin að sögunni kviknaði. Einnig er þar viðtal við nokkra unga menn sem ákváðu, eftir að hafa horft á myndina, að bjóða fram aðstoð sína við ýmis verkefni.

Þetta er hægt að nota sem hlustunarverkefni og láta krakkana til dæmis finna út:

  • hvað það var sem ungu mennirnir gerðu.
  • hvaðan þeir eru.
  • hvað þeir eru gamlir.

(Kennarar sem vilja nýta sér viðtalið sendið beiðni um að fá hljóðfælinn sendann til godverk@skatar.is )

Góðverk – margföldunaráhrif - framkvæmd
Eftir að hafa horft á myndina, hlustað á viðtalið eða bara notað hugmyndina um margföldunaráhrifin má gera eftirfarandi:

  • Allir fá miða. Á hann skrifa nemendur góðverk sem þeir ætla að leysa af hendi innan ákveðins tímabils – vika/dagur. Áhrifaríkast er að gera þetta innan bekkjarins til að nemendur átti sig betur á margföldunaráhrifunum.
  • Kennari safnar saman miðunum og geymir þar til síðar.
  • Nemendur skrá góðverkin sem þau verða aðnjótandi.
  • Í lok tímabilsins er góðverkaskráin gerð upp. Það getur verið með umræðum, talningu eða með því að gera stólparit sem sýnir hvaða góðverk eru algengust.

Markmiðið er að opna augu nemenda fyrir því að það er gefandi að vinna góðverk, en við þurfum líka að geta notið þeirra og tekið við þeim frá öðrum með þakklæti.

Góðverk í útiveru
Að undangengnum umræðum og vangaveltum um gildi og inntak góðverka eru sameiginleg útiverkefni hópsins oft skemmtilegustu og eftirminnilegustu góðverkin. Tiltektarferð eða hreinsunarferð um opin svæði eða götuna sem leikskólinn stendur við getur orðið ógleymanlegt ævintýri. Allir útbúnir með lítinn ruslapoka og upptendraðir af samfélagsmarkmiðinu „að gera fínt í hverfinu sínu“, (fjörunni sinni, götunni sinni ...) getur orðið minnisstæðara en margar sögur og innihaldsríkar umræður.

Athuga möguleikann á því að hafa myndavél meðferðis.
Þegar komið er til baka:
  •  eru góðverkin skráð og listinn hengdur upp.
  •  ef myndavél var með í för, er hægt að sýna myndir af góðverkunum sem unnin voru.

 

Kennarar eru hvattir til að benda nemendum á að segja frá verkefnum sínum og góðverkum á hér á heimasíðunni.