Góðverkadagar hafa að markmiði að hvetja alla til athafna og umhugsunar um að láta gott af sér leiða, sýna vináttu, hjálpa öðrum og gera góðverk. Þeir eru ný útfærsla á nær aldagamalli hefð og loforði skáta um að gera a.m.k. eitt góðverk á dag.
Skátar vilja sýna gott fordæmi, en einnig hvetja aðra til athafna og umhugsunar um að láta gott af sér leiða, sýna náungakærleik, vináttu, hjálpa öðrum og gera góðverk.
Það getur verið skemmtilegt verkefni fyrir vinahópa og fjölskyldur að sameinast um að gera góðverk fyrir einhvern sem á þarf að halda, hvort heldur það er einhver sem tengdur er vinahópnum eða fjölskyldunni.
Gleymum heldur ekki litlu góðverkunum gagnvart öðrum í fjölskyldunni eða einhverjum úr vinahópnum. Góðverk þurfa hvorki að vera stór eða umfangsmikil því það er hugurinn og frumkvæðið sem máli skipta.
Umbunin getur falist í þakkarorðum eða einlægu brosi þess sem þiggur, en ríkulegasta umbunin er þó eigin vellíðan yfir að hafa orðið að liði – unnið góðverk.
Hér má sækja Góðverkadagbókina.
Góðverkin heim
Vinahópurinn finnur í sameiningu út hvaða góðverk hann getur unnið á heimili eða fyrir foreldra og fjölskyldu einhvers úr hópnum. Verkefnin eru skipulögð og undirbúin af vandvirkni og svo mætir hópurinn gallvaskur heim til vinarins eða vinkonunnar einhvern næstu daga og vinnur góðverkið.Fjölskyldan finnur í sameiningu út hvaða góðverk hún getur unnið fyrir einhverja úr stórfjölskyldunni, er gömul frænka eða frændi, eða einstæðingur sem gæti þurft á aðstoð að halda, eða þætti bara vænt um að fá fjölskylduna í heimsókn?
Góðverkin í götunni – eða hverfinu
Vinahópurinn eða fjölskyldan ákveður í sameiningu út hvaða góðverk væri hægt að vinna í hverfinu eða götunni sem þau búa við. Þarf að hreinsa til, fara eina ferð á Sorpu, lagfæra eitthvað á leikvelli barnanna í hverfinu eða ...
Skemmtileg verkefni blasa við allt í kringum okkur og bíða þess að góðviljaður hópur taki til hendinni.